Félagsfundur verður haldinn laugardaginn 5. maí. Farið verður yfir störf stjórnarinnar síðan á síðasta aðalfundi og farið yfir þau verkefni sem félagið ætlar að vinna að.

Fræðslunefnd stóð fyrir kynningu fyrir félagsmenn FLF.

Portfarma bauð okkur í heimsókn  og kynnti okkur fyrir Heelen hágæða fóta og húðvörum sem notaðar eru víða um heim af fagfólki. Þar liggur 25 ára þróunarferli að baki. Einnig fengum við kynningu á Dr. Comfort heilsusokkum sem eru sérhannaðir fyrir þá sem hafa sykursýki, gigt, bjúg, taugakvilla og skert blóðflæði í fótum.

Félagið þakkar fyrir frábæra kynnningu og góðar móttökur hjá Valdísi hjá Portfarma.

www. portfarma.is

Félag löggiltra fótaaðgerðafræðinga mun halda aðalfund núna í september og í framhaldi af honum verður árshátíð félagsmanna og nemenda með aukaaðild.

Félagsfundur var haldin þann 13. april. Farið var yfir helstu atriði sem félagið hafði unnið að síðan á aðalfundi í september og einnig var rætt um hvaða verkefni félagið væri að vinna að. Nemar í fótaaðgerðaskóla Íslands voru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn sem var fyrsti félagsfundur sem þær voru boðaðar á.

Kosið var í fræðslu og skemmtinefnd sem mun án efa veita félagsmönnum góða og gagnlega fræðslu, efla félagsvitund, styrkja tengsl og vinskap félagsmanna.

Núna hefur Félag löggiltra fótaagerðafræðinga opnað heimasíðu fyrir félagið sem notast fyrir félagsmenn og þá sem vilja fræðast og fá upplýsingar um félagið. Við vonum að heimasíðan okkar sé aðgengileg og lifandi með áhugaverðum fróðleik sem gagn og gaman er að.